Erlent

Glæpamenn setja fé til höfuðs Breivik

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun ekki kemba hærurnar lengi í norsku fangelsi. Hann er svo gott sem dauður. Þetta eru skilaboðin sem glæpaheimur Noregs hefur komið áleiðis til Verdens Gang stærsta dagblaðs landsins.

Glæpamennirnir hafa sett töluvert fé til höfuðs Breivik og það eru margir sem vilja taka að sér verkið. Breivik dvelur nú í einangrun í Ila fangelsinu.

Tor Erik Larsen sem situr þar inni fyrir tvöfalt morð segir við Verdens Gang að fangelsisverðir muni aldrei láta Breivik komast í nálægð við aðra fanga því þá verði fjandinn laus. Larsen segir að fangaverðirnir geri sér vel grein fyrir hvaða hug aðrir fangar bera til Breivik.

Knut Bjarkeid fangelsisstjóri Ila segir að hann kannist ekki við þessarar hótanir. Öryggi Breivik verði tryggt eins og annarra fanga í Ila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×