
Hryðjuverk í Útey

Trump fetar í fótspor Breivik
„Sá sem bjargar landi sínu brýtur engin lög,“ sagði Donald Trump á samfélagsmiðlum síðustu helgi. Frasinn er gjarnan eignaður Napóleon Bónaparte og hefur verið notaður af ýmsum mönnum, þar á meðal forseta El Salvador og Anders Behring Breivik.

Norski hryðjuverkamaðurinn telur brotið á sér í fangelsi
Lögmaður Anders Behring Breivik, norska hryðjuverkamannsins og fjöldamorðingjans, sakar norska ríkið um að brjóta á mannréttindum hans í fangelsinu þar sem hann dvelur. Verði stjórnvöld ekki við kröfum hans um úrbætur gæti hann skotið málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu.

Reyndi að svipta sig lífi og vill losna úr einangrun
Norski fjöldamorðinginn og hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik vill losna úr einangrun. Hann hefur höfðað mál gegn norska ríkinu og segir aðstæður hans í fangelsi brjóta gegn mannréttindum en lögmaður hans sagði í gær að Breivik hefði reynt að svipta sig lífi í fangelsi.

Sendu hjartahlý skilaboð eftir meinta skipulagningu hryðjuverka
Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs Nathanssonar sakbornings í hryðjuverkamálinu, segir að margt sem umbjóðandi hans sé sakaður um sé hreinn tilbúningur. Hann sakar ákæruvaldið um að leggja fram samtöl mannanna, í mörgum tilfellum, á samhengislausan hátt þannig að ekki sé hægt að lesa það á réttan hátt.

Breivik fluttur í annað fangelsi
Norski fjöldamorðinginn og hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik verður fluttur úr Þelamerkurfangelsinu og í Hringaríkisfangelsið innan skamms.

Breivik fær ekki reynslulausn en er búinn að áfrýja
Fjöldamorðinginn Anders Breivik fær ekki reynslulausn. Þetta úrskurðaði Héraðsdómur Telemark í dag en Breivik hefur þegar áfrýjað úrskurðinum.

Umsókn Breiviks um reynslulausn tekin fyrir í dag
Umsókn norska fjöldamorðingjans og hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik um reynslulausn verður tekin fyrir í Skien-fangelsinu, suðvestur af Osló í dag.

Breivik sækist eftir reynslulausn
Norskur dómstóll þarf að taka fyrir ósk hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik um reynslulausn eftir að ríkissaksóknari hafnaði beiðninni. Breivik hefur nú afplánað tíu ár af 21 árs fangelsisdómi sem hann hlaut.

„Hryðjuverkamaðurinn var einn af okkur“
Tíu ár eru liðin í dag frá voðaverkunum í Osló og Útey, þar sem norskur hryðjuverkamaður myrti 77 manns, aðallega ungmenni í Norska verkamannaflokknum. Fórnarlambanna var minnst víða um heim og minnt á að sjónarmiðin sem hvöttu Anders Behring Breivik til ofbeldisverkanna séu síður en svo útdauð í nútímasamfélagi.


Minnast hryðjuverkaárásanna í Útey og Osló í Vatnsmýri
Tíu ár eru í dag liðin frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Osló þar sem 77 féllu. Í tilefni þess hafa Ungir jafnaðarmenn í samstarfi við Norræna húsið skipulagt minningarathöfn sem fer fram í minningarlundinum í Vatnsmýri klukkan 16:30 í dag.

Hryðjuverkaárásirnar í Útey og Osló: „Orð þeirra og gerðir eru enn hluti af samfélaginu“
„Í dag velti ég fyrir mér hvar þau væru núna, þessi 77 ljós sem slökknuðu fyrir 10 árum, yfirgnæfandi meirihluti táningar. Hvert allir þessir lífsþræðir sem skyndilega og sorglega voru rofnir hefðu legið og hvað þeir hefðu lagt til umhverfis síns, fjölskyldu, samfélags, heimsins.“

Tíu ár frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Osló: „Við höfum ekki gert nóg“
„Hryðjuverkaárásin þann 22. júlí var árás á lýðræðið okkar. Þetta var pólitísk hryðjuverkaárás sem var beint að Verkamannafloknum, ungliðahreyfingu flokksins og hugmyndafræði þeirra.“

Norski fjöldamorðinginn sækir um reynslulausn
Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hyggst sækja um reynslulausn. Þetta staðfestir lögmaður hans í samtali við Verdens Gang.

Sagðist innblásinn af Anders Breivik
Ástralski hryðjuverkamaðurinn sem myrti fimmtíu manns í mosku á Nýja-Sjálandi á föstudag vildi hefna 11 ára gamllar stúlku sem lést í hryðjuverkaárás í Stokkhólmi árið 2017.

Löng og átakanleg áminning
Paul Greengrass er mikill meistari þegar kemur að því að kvikmynda raunverulegar hörmungar. Hann nær þó ekki fyrri hæðum í afgreiðslu sinni á voðaverkunum í Útey árið 2011.

Lækna-Tómas lék Dr. Tomas í stórmynd um voðaverk Breivik
Tökur myndarinnar fóru meðal annars fram í Keflavík og á Siglufirði.

Lifði af hryðjuverkin í Útey: „Lifðum af því hann var upptekinn að skjóta aðra“
Þrátt fyrir að vera aðeins þrítug hefur Khamshajiny Gunaratnam, eða Kamzy eins og hún er alltaf kölluð, verið varaborgarstjóri Oslóar undanfarin þrjú ár.

Mannréttindadómstóllinn hendir máli Breiviks út
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Anders Behring Breivik á hendur norska ríkinu og mun dómstóllinn ekki taka kvörtun hans fyrir.

Anders Behring Breivik breytir um nafn
Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik vill ekki lengur vera þekktur undir því nafni og hefur nú breytt nafni sínu hjá þjóðskrá Noregs.

Breivik kærir illa meðferð til mannréttindadómstólsins í Strassbourg
Samkvæmt Breivik brýtur meðferðin í bága við mannréttindasáttmála Evrópu. Hann nefnir því til stuðnings að hann sé búinn að vera of lengi í einangrun, sé of oft í handjárnum og að líkamsleitir séu of tíðar. Einnig nefnir hann að mikil afskipti séu höfð af bréfasamskiptum hans.

Norðmenn gera sjónvarpsþáttaröð um árásina í Útey
Hjónin Sara Johnsen og Pål Sletaune standa fyrir gerð þáttanna þar sem einblínt verður á þá sem í gegnum störf sín komu að málinu.

Brutu ekki á réttindum Breivik
Áfrýjunardómstóll Noregs hefur bundið enda á málaferli Breivik gegn ríkinu frá árinu 2015.

Saksóknari um Breivik: „Hann lítur á sjálfan sig sem ungan Adolf Hitler“
Norski ríkissaksóknarinn segir að Anders Behring Breivik hafi þolað vistina í fangelsinu ágætlega, betur en margir aðrir fangar.

Breivik fékk að faðma móður sína áður en hún lést
Réttarhöld í máli Anders Behring Breivik gegn norska ríkinu héldu áfram í morgun.

Breivik sýndi enga iðrun fyrir áfrýjunardómstól
Anders Behring Breivik sem myrti sjötíu og sjö manns í Osló og Útey árið 2011 sýndi enga iðrun fyrir norskum dómstól í dag þar sem kvartanir hans vegna aðbúnaðar í fangelsinu voru teknar fyrir. Hann viðurkennir að umkvartanir hans hafi verið settar fram til að fá vettvang til að koma róttækum þjóðernisskoðunum sínum á framfæri.

Breivik hefur skipst á bréfum við sænska konu frá 2012
Fram kom fyrir dómi í morgun að Anders Behring Breivik sé með fjölda mynda af konum á korktöflu í klefa sínum.

Breivik heilsaði að nasistasið í réttarsal
Réttarhöld hófust í máli Anders Behring Breivik gegn norska ríkinu í morgun.

Breytingar á aðstæðum Breivik í fangelsinu
Anders Behring Breivik hefur búið við mikla einangrun og komst dómstóll að þeirri niðurstöðu í vor að yfirvöld brytu að hluta á mannréttindum fangans.

Noregur áfrýjar dómi um Anders Breivik
Vilja snúa dómi um að einangrun Anders Breivik sé ómannúðleg.