Erlent

Sprenging í kolanámu kostar 16 mannslíf

Sprenging í kolanámu í Úkraníu hefur kostað 16 námumenn lífið og a.m.k. 10 annarra er saknað. Náman er staðsett í Lugansk héraðinu í austurhluta landsins.

Sprengingin átti sér stað skömmu eftir miðnættið í nótt og unnið er að því að finna þá sem hugsanlega komust af í henni.

Kolanámur í Úkraníu eru taldar með þeim hættulegustu í heimi vegna skorts á tækjabúnaði og öryggisráðstöfunum. Námuslys er því algeng í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×