Erlent

Herstjóri uppreisnarmanna í Líbú ráðinn af dögum

Abdel Younes, einn af leiðtogum og herstjóri uppreisnarmanna í Líbíu, var ráðinn af dögum í gærdag.  Younes féll í fyrirsát á leið til bækistöðva uppreisnarmanna. 

Younes var í hópi þeirra sem komu Muammar Gaddafi til valda árið 1969 og hann var um tíma innanríkisráðherra Líbíu. Hann gekk svo til liðs við uppreisnarmenn í febrúar s.l.

Fall Yoounes er talið mikið högg fyrir uppreisnarmenn enda hafa þeir staðið sig vel í bardögum undir hans stjórn að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×