Fundu risavaxinn járnloftstein í Mongólíu 29. júlí 2011 06:50
Kínverskir vísindamenn hafa fundið það sem gæti verið einn stærsti járnloftsteinn sem hingað til hefur fundist á jörðinni. Loftsteinninn fannst í 2.900 metra hæð í Altai fjöllunum í Mongólíu sem liggja á mjög einangruðu öræfasvæði milli héraðanna Zingjiang og Uyghur. Hann er talinn allt að 30 tonn að þyngd og því hugsanlega einn stærsti loftsteinn úr járni sem fundist hefur. Sá stærsti sem hingað til er vitað um í Kína er Armanty loftsteinninn sem fannst á sömu slóðum árið 1898 en hann reyndist 28 tonn að þyngd. Vísindamennirnir þurftu að nota hesta og kameldýr til að komast að þessum loftsteini sem hlotið hefur nafnið Zingjiang loftsteinninn. Sögur um stein með óvenjulegum lit í Altai fjöllunum leiddu til þess að vísindamennirnir könnuðu málið. Þegar vísindamennirnir loksins fundu steininn komu í ljós merki um að reynt hafi verið að skera í hið glansandi yfirborð hans. Þeir voru því ekki þeir fyrstu sem fundu steininn. Nákvæm staðsetning á þessum loftsteini hefur ekki verið gerð opinber vegna hættu á þjófnaði.
Mest lesið Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Innlent Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Erlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Fleiri fréttir Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Sjá meira