Erlent

Marvel á Köngulóarmanninn, Hulk og Járnmanninn

Mynd/AP
Bandarískur dómari hefur úrskurðað að teiknimyndasögufyrirtækið Marvel Worldwide Inc eigi höfundaréttinn á ótal þekktum ofurhetjum á borð við Köngulóarmanninn, Járnmanninn og X-mennina.

Kröfum dánarbús listamanns Jack Kirby var þar með hafnað, en Marvel hélt því fram í máli sínu að Kirby hafi skapað ofurhetjurnar undir ráðningasamningi við fyrirtækið, og þar með væru kröfur erfingja hans til höfundaréttarins ógildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×