Innlent

Verulega dregur úr umferð

Umferðin á sex mælingastöðvum út frá höfuðborgarsvæðinu, var 7,7 prósentum minni um nýliðna helgi, en um sömu helgi í fyrra, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar.

Það sem af er sumri er umferðin á þessum mælingastöðvum tæplega sex prósentum minni en í fyrra. 

Samdráttinn má að mestu rekja til minni ferðalaga Íslendinga, því ferðir útlendinga á eigin bílum og bílaleigubílum viðrist í fljótu bragði ekki vera minni en í fyrrasumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×