Erlent

Konunglega brúðkaupið látlaust

Mike Tindall og Zara Philips eftir athöfnina í dag.
Mike Tindall og Zara Philips eftir athöfnina í dag. Mynd/AP
Zara Phillips, barnabarn Elísabetar Englandsdrottningar, og Mike Tindall, þekktur rugby-leikmaður, gengu í hjónaband í dag. Zara Phillips er elsta dóttir Önnu. Athöfnin var látlaus á mælikvarða konungsfjölskyldunnar. Gestirnir voru ekki margir heldur einungis nánustu ættingjar og vinir. Þar á meðal drottningin og Filippus eiginmaður hennar, Karl prins, Camilla Parker Bowles, Harry prins sem og Vilhjálmur og Kate Middleton sem gengu í það heilaga fyrr á árinu. Brúðkaup þeirra var langt því frá látlaust.

Brúðhjónin voru gefin saman í Edinborg í Skotlandi. Fjölmargir söfnuðust saman fyrir utan kirkjuna til að sjá brúðhjóniin og meðlimi konungsfjölskyldunnar. Að venju höfðu afar margir áhuga á brúðarkjólnum en hann hannaði Bretinn Stewart Paravin.


Tengdar fréttir

Konunglegt brúðkaup í dag

Zara Phillips, barnabarn Elísabetar Englandsdrottningar, og Mike Tindall, þekktur rugby-leikmaður, ganga í hjónaband í dag. Zara Phillips er elsta dóttir Önnu sem er eina dóttir Elísabetar drottningar. Brúðkaupið fer fram í Edinborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×