Erlent

Konunglegt brúðkaup í dag

Mynd/AP
Zara Phillips, barnabarn Elísabetar Englandsdrottningar, og Mike Tindall, þekktur rugby-leikmaður, ganga í hjónaband í dag. Zara Phillips er elsta dóttir Önnu sem er eina dóttir Elísabetar drottningar. Brúðkaupið fer fram í Edinborg.

Zara og Mike kynntust í Ástralíu árið 2003 þegar heimsmeistaramótið í rugby fór fram þar. Sagan segir að Harry prins, frændi Zöru, hafti kynnt þau.

Meðal gesta í brúðkaupinu eru drottningin, Karl prins og Camilla Parker Bowles eiginkona hans, Harry prins og auðvitað Hertogahjónin af Cambridge, þau Vilhjálmur og Kate Middleton, sem gengu í það heilaga fyrr á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×