Sebastian Vettel náði besta tíma í tímatökum fyrir ungverska Formúlu 1 kappaksturinn sem fer fram á morgun. Hann var 0.162 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren í tímatökunni á Hungaroring brautinni, en Jenson Button var þriðji fljótastur.
Hamilton vann mótið í Ungverjalandi árið 2007 og 2009 og Button vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 á brautinni árið 2006 og fagnar sínu 200 móti á morgun.
Vettel er með 77 stiga forskot í stigakeppni ökumanna á Mark Webber á Red Bull, sem náði aðeins sjötta sæti í tímatökunni. Á undan honum eru m.a. Felipe Massa og Fernando Alonso á Ferrari, en Massa náði að slá Alonso við í fyrsta skipti á árinu hvað stöðu á ráslínu varðar.
Nýliðinn Sergio Perez á Sauber komst í annað skiptið á árinu í lokaumferð tímatökunnar, en hann gerði það einnig í Mónakó en gat ekki keppt eftir árekstur á vegg.
Bein útsending verður frá mótinu í Ungverjalandi kl. 11.40 á sunnudag í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.
Tímarnir af autosport.com
1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m19.815s
2. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m19.978s + 0.163
3. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m20.024s + 0.209
4. Felipe Massa Ferrari 1m20.350s + 0.535
5. Fernando Alonso Ferrari 1m20.365s + 0.550
6. Mark Webber Red Bull-Renault 1m20.474s + 0.659
7. Nico Rosberg Mercedes 1m21.098s + 1.283
8. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m21.445s + 1.630
9. Michael Schumacher Mercedes 1m21.907s + 2.092
10. Sergio Perez Sauber-Ferrari engin tími
11. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m22.256s + 1.994
12. Vitaly Petrov Renault 1m22.284s + 2.022
13. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m22.435s + 2.173
14. Nick Heidfeld Renault 1m22.470s + 2.208
15. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m22.684s + 2.422
16. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m22.979s + 2.717
17. Pastor Maldonado Williams-Cosworth engin tími
18. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m24.070s + 2.492
19. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m24.362s + 2.784
20. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m24.534s + 2.956
21. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m26.294s + 4.716
22. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m26.323s + 4.745
23. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m26.479s + 4.901
24. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m26.510s + 4.932
Formúla 1