Innlent

Trúir því ekki að ríkisstjórnin verði á móti

Bæjarstjóri Norðurþings neitar að trúa því að ríkisstjórnin leggist gegn tugmilljarða fjárfestingum Kínverjans Huang Nubo í íslenskri ferðaþjónustu á sama tíma og sárvanti að efla atvinnu.

Huang Nubo flaug með fylgdarliði norður á Grímsstaði á Fjöllum í síðustu viku, skrifaði undir viljayfirlýsingu við bæjarstjóra Norðurþings um uppbyggingu ferðaþjónustu og keypt svo stóran hluta jarðarinnar til að byggja þar lúxushótel. Bæjarstjórinn Bergur Elías Ágústsson segir þetta stærsta fjárfestingarverkefni í ferðaþjónustu svo áratugum skiptir og það muni hafa gríðarmikla þýðingu, ekki bara fyrir Norðausturland heldur Ísland allt.

Kaupin þurfa samþykki stjórnvalda og miðað við fyrstu viðbrögð ráðherra er óvíst að þau renni í gegn. Þannig sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra fyrir helgi að áformin þörfnuðust kyrfilegrar skoðunar og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir á heimasíðu sinni að þessu sé ekki hægt að kyngja ómeltu.

Bæjarstjóri Norðurþings trúir því ekki að áformin mæti andstöðu ríkisstjórnar. Hann telur að ráðherrar séu fyrst og fremst að setja varnagla og kveðst trúa því að þegar aðilar hafi kynnt sér málið betur fái það góðan farveg.

Hann bendir á erfiða stöðu Norðausturlands, sem hafi verið í mikili baráttu undanfarin ár. Þar hafi fólki fækkað. Kveðst Bergur Elías ekki trúa öðru en að ríkisvaldið og ráðherrar leggist á sveif með þeim að efla þar atvinnustig. Landshlutinn þurfi svo sannarlega á því að halda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×