Formúla 1

Senna: Hefur hungrað að komast aftur í keppni

Bruno Senna meðal áhorfenda á Spa brautinni í dag.
Bruno Senna meðal áhorfenda á Spa brautinni í dag. Mynd: Andrew Ferraro/LAT Photographic/Renault F1
Bruno Senna var tilkynntur sem ökumaður Formúlu 1 liðs Renault í gær í stað Nick Heidfeld, en Senna er frá Brasilíu, en hefur keppt í ýmsum mótaröðum síðustu ár. Hann keppti í Formúlu 3 í Bretlandi 2005, en færði sig yfir í GP2 árið 2007 og árið 2008 var hann í baráttu um titilinn í þeirri mótaröð, en varð í öðru sæti. Senna keppt með Hispania liðinu í Formúlu 1 í fyrra, en var síðan ráðinn varaökumaður Renault fyrir þetta tímabil.

Heidfeld kom inn í Renault liðið eftir að Robert Kubica meiddist í rallkeppni í vetur, en Senna, sem er 27 ára gamall tekur nú sæti Heidfeld og keppir á Spa brautinni með liðinu ásamt Vitaly Petrov.

„Ég er hæstánægður að Renault hefur boðið mér tækifæri til að verða keppnisökumaður. Það er örvun að komast um borð í R31 bílinn og hef fengið mikla reynslu hjá liðinu á þessu tímabili", sagði Senna í fréttatilkynningu frá Renault. Senna keyrði Renault bílinn á föstudagsæfingu í Ungverjalandi á dögunum.

„Ég er bæði spenntur og taugaveiklaður - það er eins og jólin og mín erfiðasta prófraun hafa orðið að veruleika á sama degi. En ég er uppveðraður að keppa í Formúlu 1 á ný, sérstaklega með svona stóru liði. Mig hefur hungrað að komast aftur í keppni og það er ekki oft sem maður fær svona tækifæri með liði af þessari stærðargráðu. Mér finnst ég tilbúinn að takast á við verkefnið og er þakklátur liðinu. Ég mun ekki bregðast", sagði Senna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×