Innlent

Sáttatillaga starfsmanna Kvikmyndaskólans

Starfsmenn leggja m.a. til að tækjabúnaður skólans standi fólki til boða án endurgjalds yfir sumartímann.
Starfsmenn leggja m.a. til að tækjabúnaður skólans standi fólki til boða án endurgjalds yfir sumartímann.
Starfsmenn Kvikmyndaskóla Íslands sendu í kvöld frá sér sáttatillögu. Meðal annars er lagt til að skólinn lækki beiðni sína um árlega fjárveitingu frá ríkinu, að skólagjöld verði hækkuð og nemendum og deildum fækkað.

Sáttartillagan ber yfirskriftina Vinnum Saman. Starfsmennirnir segja helstu þolendur núverandi aðstæðna vera nemendur skólans. Skólann sjálfan segja þeir verðmætan íslenskri þjóð til framtíðar. Því biðja þeir stjórn KVÍ og menntamálaráðuneytið að taka tillöguna til rækilegrar skoðunar.

Til er lagt að KVÍ lækki beiðni sína um fjárveitingu niður í 63 milljónir á ári með aukafjárveitingu fyrir árið 2011 uppá 42,5 milljónir. Upphaflega beiðnin var 70 milljóna króna ársframlag og 55 milljóna aukafjárveiting. Ríkið var tilbúið að greiða 56 milljónir árlega og 30 milljónir aukalega í ár.

Skólagjöld mega hækka úr 2,4 milljónum og upp í 2,6 milljónir, eða um 7,7% samkvæmt tillögunum.

Starfsmenn skólans leggja og til að hluti skólans verði gefinn nemendum, ríki og fagfélögum. Eignarhaldið myndi þá skiptast svo að núverandi rekstrarfélag héldi 51% skólans, nemendur fengju 13%, fagfélög tengd kvikmyndagerð fengju 20% og íslenska ríkið afganginn, eða 16%.

Loks leggja starfsmennirnir til að aðstaða og tækjabúnaður skólans standi fólki til boða yfir sumartímann endurgjaldslaust. Það yrði atvinnuskapandi fyrir nemendur. Til dæmis mætti nýta búnaðinn til að framleiða margmiðlunarefni fyrir Námsgagnastofnun eða vinna með forvarnarfélögu eins og jafningjafræðslunni.

Íslensk stjórnvöld hafa hrint af stað átakinu „Nám er vinnandi vegur" þar sem markmiðið er að skapa 1000 ný námstækifæri fyrir fólk að 25 ára aldri. Áætlaður kostnaður af því er 7 milljarðar króna. Starfsmenn Kvikmyndaskólans segja skólann geta staðið undir 15% af þeim námstækifærum.

„Þær þjóðir, sem lengst hafa náð í hagsæld og velferð, hafa varið hvað mestum fjármunum til menntunar. Í menntun felast ómetanleg verðmæti," segir í lokum sáttartilboðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×