Innlent

Lög­reglan búin að finna manninn sem beraði sig

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Lögreglan leitaði að manninum í morgun.
Lögreglan leitaði að manninum í morgun. vísir/vilhelm

Lögreglan er búin að finna manninn sem elti konu í nótt og beraði kynfæri sín fyrir henni

Maðurinn ók um á bíl á eftir konunni sem var fótgangandi, fór út úr bifreiðinni og kallaði á eftir henni með buxurnar á hælunum þannig að getnaðarlimur hans blasti við. Konan, sem gerði lögreglu viðvart, segist hafa komist heim til sín heil á húfi. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við fréttastofu að maðurinn hafi verið handtekinn og bíði þess nú að verða yfirheyrður.


Tengdar fréttir

Með veiði­stangir en neituðu því að hafa verið að veiða

Veiðivörður tilkynnti um tvo að veiðum í Elliðaá án leyfis. Aðilarnir á vettvangi neituðu sök við lögreglu þrátt fyrir að vera með veiðistangir meðferðis en veiðivörðurinn sagðist vera með mynd af þeim að veiðum. Ökumaður framvísaði skírteni bróður síns, og maður beraði sig fyrir konu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×