Formúla 1

Hamilton býst við spennu á Ítalíu

Lewis Hamilton á McLaren í tímatökunni á Spa á dögunum.
Lewis Hamilton á McLaren í tímatökunni á Spa á dögunum.
Lewis Hamilton féll úr leik í síðustu Formúlu 1 keppni, á Spa brautinni í Belgíu. Hann viðurkenndi eftir keppnina að hafa gert mistök í akstri, sem orsakaði árekstur hans og Kamui Kobayashi. Hamilton varð að hætta keppni eftir atvikið, en hann keppir í þrettánda Formúlu 1 móti ársins á Monza brautinni á Ítalíu um næstu helgi.

„Á síðasta ári vann ég á Spa, en komst ekki í endamark á Monza. Þetta árið mun ég leita eftir að snúa þessu við! Ég hlakka til að mæta til leiks á Ítalíu. Ég ók þar mikið þegar ég keppti í kart-kappakstri. Ég elska landið", sagði Hamilton í fréttatilkynningu frá McLaren.

Hann kvaðst ekki verið með hugann við það sem gerðist á Spa, heldur horfði fram veginn. Hamilton er í fimmta sæti í stigamóti ökumanna og möguleiki hans á meistaratitlinum minnkaði talsvert þegar hann féll úr leik í síðustu keppni.

„Ég tel að við mætum nokkuð bjartsýnir í mótið. Ég hef aldrei sigrað á Monza brautinni og það væri gaman að ná hagstæðum úrslitum í ár. Ég hlakka sérstaklega til tímatökunnar, af því ég held að stillanlegi afturvængurinn muni skipta miklu máli, hvað aksturstímann varðar. Ég vil hámarka getu bílsins í tímatökunni og vill vitanlega fylgja því eftir í keppninni."

 

Notkun á stillanlegum afturvæng þýðir að ökumenn ná meiri hámarkshraða en ella og á Monza verður leyft að nota vænginn á tveimur stöðum í brautinni í kappakstrinum, en notkun er frjáls á æfingum og í tímatökunni.

„Ég held að það verði spenna í tímatökunni. Við verðum 20 km hraðari en áður á fjórum stöðum í brautinni, þannig að tímarnir í tímatökunni verða hraðari en í keppninni. Það ætti að verða nokkuð spennandi. Ég held að við séum að fara horfa fram á aðra jafna keppni og ég hlakka til", sagði Hamilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×