Innlent

Sterkur skjálfti skammt frá Goðabungu

Mýrdalsjökull er skammt frá Goðabungu. Myndin er úr safni.
Mýrdalsjökull er skammt frá Goðabungu. Myndin er úr safni.
Tveir skjálftar mældust skammt frá Goðabungu við Mýrdalsjökul skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld. Annarsvegar mældist skjálfti upp á 3,2 á richter en upptök hans voru 3,5 kílómetrar Norð-Austur af Goðabungu.

Þá mældist annars skjálfti á sama tíma upp á 2,5 á richter 7,4 kílómetra NNV af Goðabungu.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er verið að kanna skjálftanna en ekki er útilokað að aðeins sé um einn skjálfta að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×