Innlent

Útivistartími barna breytist

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Börn eiga ekki að vera að hjóla í myrkri.
Börn eiga ekki að vera að hjóla í myrkri.
Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum í dag. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að útivistarreglurnar séu samkvæmt barnaverndarlögum. Tilgangurinn er meðal annars að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.

Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×