Innlent

Eyjafjallajökull hefur áhrif á réttarstöðu flugfarþega

Eyjafjallajökull.
Eyjafjallajökull. Mynd/Vilhelm
Eldgosið í Eyjafjallajökli mun hafa áhrif á réttindi flugfarþega í framtíðinni. Ástæðan er meðal annars gríðarlegur kostnaður flugfélaga vegna gossins. Bætur vegna tafa verða að öllum líkindum takmarkaðar, að mati fulltrúa Alþjóðasamtaka flugfarþega.

Þegar gosið í Eyjafjallajökli stóð sem hæst árið 2010 lamaðist flugumferð um nánast alla Evrópu og er áætlað tap flugfélaga vegna gossins um 218 milljarðar króna samkvæmt mati alþjóðasamtaka Flugfélaga, IATA. Í kjölfarið fór af stað sú umræða að óeðlilegt sé að flugfélög beri ótakmarkaða ábyrgð á að bæta farþegum sínum upp tjón sem þeir verða af vegna seinkana eða niðurfellingu flugferða.

„Óvissuástandið sem skapaðist við eldgosið sýndi fram á hvað sú málsmeðferð var takmörkuð af því að það var í raun ómögulegt að bjóða upp á ótakmarkaða umsjón og aðstoð því það var ómögulegt að segja hvenær loftrýmið yrði hreint á ný.“ segir Monique de Stam, svæðisstjóri hjá Alþjóðasamtökum Flugfélaga.

Nú er verið að undirbúa endurskoðun þessarar löggjafar og segir Monique eðlilegt að tekið verði tillit til náttúruhamfara.

„Skoði maður reglugerðir um aðrar greinar samgangna kveða þær allar á um takmarkanir hvað varðar tímasetningu, en hún takmarkast við tvær eða þrjár nætur. Einnig hvað varðar fjárhæðir, þ.e. tiltekin fjárhæð á hverja nótt,“ segir Monique.

Hún segir því eðlilegt að horfa til bílaiðnaðarins þegar verið er að gera þessar breytingar þó svo að þær myndu takmarka rétt flugfarþegans.

„Ég tel að það sé öllum til hagsbóta, þ.m.t. farþegum, að reglurnar séu skýrar og sanngjarnar." segir Monique.

Ekki er von á að breytingar á reglunum verði samþykktar fyrren árið 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×