Innlent

Ofsaakstur í höfuðborginni

Mynd úr safni
Talsvert var um hraðaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Lögregla tók nokkra tugi ökumanna fyrir ofsaakstur og var í grófustu tilvikunum ekið 75-80 km/klst yfir hámarkshraða. Ökufantarnir eru á ýmsum aldri og af báðum kynjum.

Meðal annars var um að ræða tvo 17 ára drengi, en annar þeirra ók Reykjanesbraut í Garðabæ á 140 km hraða. Sá verður bæði sviptur ökuleyfi og sektaður um væna upphæð.

Þá komu við sögu tveir karlar á sjötugsaldri og kona um sextugt. Þau hafa öll áður verið tekin fyrir hraðaakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×