Innlent

Rafmagnslaust í Mosfellsbæ

Mynd úr safni.
Rafmagnslaust er í syðri hluta Mosfellsbæjar og Staðarhverfinu, nyrðri hluta Grafarvogs. Rafmagnsleysið má rekja til bilunar sem kom upp í háspennukerfi Orkuveitunnar. Menn vita enn ekki nákvæmlega hvað veldur biluninni.

„Við erum að vonast til að flokkarnir verði búnir að koma nýjum leiðslum inn núna uppúr hálf 11," segir Eiríkur Hjálmarsson og bætir við það taki smá tíma að tengja þær nýju leiðslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×