Innlent

Sveppaauglýsingar bannaðar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sveppi þótti tala til barna í auglýsingunum. Mynd/ Anton.
Sveppi þótti tala til barna í auglýsingunum. Mynd/ Anton.
Neytendastofa hefur bannað þrjár auglýsingar í auglýsingaherferð fyrir kvikmyndina Algjör Sveppi og Töfraskápurinn sem Hreyfimyndasmiðjan framleiðir.

Neytendastofu bárust kvartanir vegna auglýsinganna þar sem þær kynnu að brjóta gegn banni sem varðar börn og auglýsingar með því að hvetja börn til að kaupa auglýstar vörur. Neytendastofa féllst á þessi sjónarmið og taldi auglýsingarnar brjóta gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Neytendastofa taldi ljóst að auglýsingarnar þrjár fælu í sér beina hvatningu til barna til þess að kaupa aðgang að kvikmyndinni. Hreyfimyndasmiðjunni ehf. sem er framleiðandi bæði kvikmyndarinnar og auglýsinganna var því bönnuð birting þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×