Handbolti

Handboltinn að byrja - stórleikur í Krikanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það verður eflaust fjör í Krikanum í kvöld.
Það verður eflaust fjör í Krikanum í kvöld.
Handboltinn byrjar að rúlla af fullum krafti í kvöld en þá fer fram fyrsta umferðin í N1-deild karla.

Stórleikur kvöldsins fer fram í Hafnarfirði þar sem Íslandsmeistarar FH taka á móti Fram. Bæði lið nokkuð breytt frá síðasta vetri og líkleg til afreka.

HK tekur síðan á móti Haukum en Aron Kristjánsson er aftur tekinn við Haukaliðinu.

Leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.30 nema leikur Aftureldingar og Akureyrar sem hefst 18.30.

FH - Fram

HK - Haukar

Grótta - Valur

Afturelding - Akureyri




Fleiri fréttir

Sjá meira


×