Innlent

Guðmundar- og Geirfinnsmál: Björgvin vill sannleiksnefnd

Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram tillögu á Alþingi um að sérstök sannleiksnefnd verði skipuð til rannsóknar á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Hann segir fólk úr öllum flokkum styðja tillöguna og mikilvægt sé fyrir samfélagið að gera þessi mál upp.

Úr því sem komið er sé heppilegast að skipa sannleiksnefnd sem sé skipuð lögfræðingi, sagnfræðingi og reyndum fjölmiðlamanni til að fara yfir málið frá upphafi til enda. Mikilvægt sé fyrir samfélagið allt að gera þessi mál upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×