Viðskipti erlent

Fyrstu tilboðin í Iceland opnuð á miðvikudag

Reuters hefur það eftir ónafngreindum heimildarmönnum að fyrstu tilboðin í Iceland Foods verslunarkeðjuna verði opnuð á miðvikudaginn kemur.

Reiknað er með að bæði Vm Morrisons og Asda, sem er í eigu Wal Mart, muni leggja fram tilboð. Hinsvegar ætlar Malcolm Walker forstjóri Iceland að bíða átekta en hann getur jafnað hæsta tilboðið ef hann vill og eignast þannig keðjuna að fullu. Sem stendur heldur hann á 23% hlut í Iceland.

Skilanefnd Landsbankans á 67% og Glitnir á 10% og þessir hlutir verða seldir saman. Samkvæmt Reuters hefur Walker rætt við nokkurn fjölda hugsanlegra samstarfsaðila um kaupin á Iceland.

Það eru bankarnir UBS og Bank of America sem annast söluna á Iceland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×