Formúla 1

Vettel fremstur á ráslínu í þrettánda skipti og Red Bull sló met

Sebastian Vettel fagnar árangrinum í tímatökunni í dag.
Sebastian Vettel fagnar árangrinum í tímatökunni í dag. AP MYND: Gurinder Osan
Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Buddh brautinni í Indlandi í dag. Lewis Hamilton var með næst besta tíma á McLaren og Mark Webber á Red Bull varð þriðji. Árangur Vettel þýðir að hann verður fremstur á ráslínu í þrettánda skipti í Formúlu 1 móti á árinu.

Lewis Hamilton færist aftur um þrjú sæti á ráslínunni á morgun, þar sem dómarar á brautinni töldu hann hafa brotið af sér á fyrstu æfingu keppnisliða á föstudag. Hann ók of hratt þar sem gulum viðvörunarflöggum var veifað í brautinni og fékk þriggja sæta refsingu fyrir.

Sama henti Sergio Perez hjá Sauber liðinu. Hamilton færist úr öðru sæti á ráslínunni fyrir kappaksturinn í það fimmta, en Webber færist upp í annað sætið, Fernando Alonso á Ferrari verður þriðji á ráslínu og Jenson Button á McLaren fjórði.

Með árangrinum í dag hefur Red Bull liðið náð því að vera sextán sinnum fremst á ráslínu á keppnistímabilinu. Það er met í Formúlu 1 að keppnislið nái slíkum árangri í tímatökum á sama keppnistímabili. Auk þess að Vettel hefur verið þrettán sinnum verið fremstur á ráslínu á árinu hefur Mark Webber, liðsfélagi Vettel hjá Red Bull, þrisvar verið fremstur.

Tímarnir af autosport.com

1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m24.178s

2. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m24.474s + 0.296

3. Mark Webber Red Bull-Renault 1m24.508s + 0.330

4. Fernando Alonso Ferrari 1m24.519s + 0.341

5. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m24.950s + 0.772

6. Felipe Massa Ferrari 1m25.122s + 0.944

7. Nico Rosberg Mercedes 1m25.451s + 1.273

8. Adrian Sutil Force India-Mercedes engin tími

9. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari engin tími

10. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari engin tími

11. Vitaly Petrov Renault 1m26.319s + 1.662

12. Michael Schumacher Mercedes 1m26.337s + 1.680

13. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m26.503s + 1.846

14. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m26.537s + 1.880

15. Bruno Senna Renault 1m26.651s + 1.994

16. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m27.247s + 2.590

17. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m27.562s + 2.905

18. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m27.876s + 1.687

19. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m28.565s + 2.376

20. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m28.752s + 2.563

21. Narain Karthikeyan HRT-Cosworth 1m30.216s + 4.027

22. Daniel Ricciardo HRT-Cosworth 1m30.238s + 4.049

23. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m30.866s + 4.677

24. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m34.046s + 7.857






Fleiri fréttir

Sjá meira


×