Viðskipti erlent

Neyðarfundur hjá ríkisstjórn Grikklands

Það er margvísleg vandamál hjá grísku ríkisstjórninni þessa dagana. Hún reynir nú allt til þess að afstýra þjóðargjaldþroti.
Það er margvísleg vandamál hjá grísku ríkisstjórninni þessa dagana. Hún reynir nú allt til þess að afstýra þjóðargjaldþroti.
Ríkisstjórn George Papandreou forsætisráðherra Grikklands er nú á neyðarfundi vegna vaxandi pólitískrar óvissu í landinu í kjölfar tilkynningar um að niðurskurðaráform stjórnvalda muni fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC.

Þjóðhöfðingjar um gjörvalla Evrópu hafa í dag lýst yfir áhyggjum sínum af þeirri óvissu sem skapast hefur um stöðu landsins í kjölfar ákvörðunarinnar um að þjóðaratkvæðagreiðslu. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, lýsti yfir miklum áhyggjum af stöðu mála í ávarpi í dag.

Verð hlutabréfa í Evrópu og Bandaríkjunum lækkaði skarplega, um þrjú til fimm prósent, þó meira í Evrópu. Viðbrögð markaða við stöðunni sem upp er komin í Grikklandi virðast vera þau að fjárfestar trúa tæpast öðru en að miklar niðurskurðartillögur stjórnvalda verði felldar í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þjóhöfðingjar á evrusvæðinu samþykktu á dögunum að stækka björgunarsjóð ESB úr 440 milljörðum evra í þúsund milljarða til að bregðast við vaxandi vanda vegna mikilla ríkisskulda og vanda banka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×