Körfubolti

Jón Arnór og félagar mörðu botnliðið

Jón Arnór.
Jón Arnór.
Jón Arnór Stefánsson skoraði fimm stig fyrir lið sitt, CAI Zaragoza, sem vann dramatískan sigur, 75-74, á Blancos de Rueda Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Jón Arnór tók þess utan eitt frákast en hann fékk ekkert allt of mikið að spila að þessu sinni.

Liðið hans er í ellefta sæti af átján liðum í deildinni. Mótherji liðsins í kvöld, Valladolid, er í neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×