Enski boltinn

Suarez kærður fyrir kynþáttafordóma

Enska knattspyrnusambandið hefur kært Luis Suarez, framherja Liverpool, fyrir kynþáttafordóma í garð Patrice Evra, leikmanns Man. Utd.

Evra sagði að Suarez hefði hreytt í sig fúkyrðum að minnsta kosti tíu sinnum í leik liðanna en Suarez hafnaði ásökununum.

Ítarleg rannsókn enska knattspyrnusambandsins hefur aftur á móti leitt í ljós að rétt sé að kæra Suarez vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×