Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Angóla 24-28 Sigurður Elvar Þórólfsson í Santos skrifar 4. desember 2011 10:38 Mynd/Pjetur
Íslenska kvennalandsliðið náði sér aldrei á strik gegn Afríkumeistaraliði Angóla í öðrum leiknum á heimsmeistaramótinu í handknattlek í Brasilíu í kvöld. Flest fór úrskeiðis hjá liðinu. Varnarleikurinn var slakur og leikmenn gerðu gríðarlega mörg mistök í sóknarleiknum. Angóla sigraði 28-24 og er með pálmann í höndunum um að komast í 16-liða úrslit en staða Íslands versnaði til muna því Angóla er með betri stöðu í innbyrðisviðureigninni. Og það gæti reynst dýrkeypt þegar uppi er staðið. Á um fimm mínútna kafla um miðja fyrri hálfleik hrundi leikur íslenska liðsins – og Angóla skoraði fjögur mörk í röð og komst í 9-7. Ísland náði aldrei að komast yfir eftir það og eltingaleikurinn stóð yfir til leiksloka. Allt of margir leikmenn Íslands léku undir getu. Það sjálfstraust sem geislaði af liðinu gegn Svartfjallalandi var ekki til staðar. Leikmenn tóku ekki skot úr ákjósanlegum færum og það læðist að manni sá grunur að óttinn við að tapa leiknum hafi verið sterkari en sigurviljinn. „Við vorum bara lélegar. Svo einfalt er það,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir eftir leikinn við Vísi. „Einstaklingsframtakið var ráðandi, liðsheildina vantaði, og við vorum bara alltaf á eftir í öllu,“ sagði Anna og leyndi ekki vonbrigðum sínum. Það er samt enn von um að komast áfram og við munum halda áfram að reyna ná markmiðinu,“ bætti hún við. Það var fátt jákvætt við leik Íslands í gær. Dagný Skúladóttir komst ágætlega frá sínu, skoraði 5 mörk úr 5 tilraunum. Stella Sigurðardóttir átti nokkrar rispur í sókninni og Guðný Jenný Ásmundsdóttir markvörður varði 16 skot – sem er alls ekki slæmt. Mistök í sóknarleiknum voru gríðarlega mörg. Alls 11 slík í fyrri hálfleik og það er bara of mikið í leik sem þessum. Rangar ákvarðanir voru teknar hvað eftir annað í sóknarleiknum og sem dæmi má nefna að Ísland náði aðeins að vinna 2 mínútna kafla með einu marki á meðan Angóla var aðeins með 4 útileikmenn. Hægri vængur íslenska liðsins hefur ekki náð að sýna styrk sinn í fyrstu tveimur leikjunum. Rut Jónsdóttir og Birna Berg Haraldsdóttir eru ekki nógu ógnandi. Það vantar bara að þær skjóti úr þeim færum sem þær fá. Hraðaupphlaupin eru heldur ekki að skila sér. Þar vantar mikið upp á. Spennufallið var mikið hjá Íslandi. Staðan eftir tapleikinn í kvöld er allt önnur en í gær þar sem Ísland náði frábærum úrslitum í 22-21 sigri gegn Svartfjallalandi. Svo gæti farið að sá sigur myndi ekki skila miklu því Angóla er með 4 stig og er búið að vinna bæði Ísland og Kína. Möguleikar Íslands eru því minni en áður að komast í 16-liða úrslit. Sigur gegn Kína er algjörlega nauðsynlegur en það dugir ekki til. Ísland þarf að ná stigi til viðbótar gegn Noregi eða Þýskalandi. Risaverkefni þar á ferðinni. Hér að neðan má sjá framvindu leiksins, tölfræði, leikmannahópa liðanna auk textalýsingar frá blaðamanni Vísis á vellinum.
Tengdar fréttir Anna Úrsúla: Bara einhver vitlaus hjátrú hjá mér Anna Úrsúla Guðmundsdóttir getur ekki horft á liðsfélagana taka vítaköstin á Heimsmeistaramótinu í handbolta kvenna í Brasilíu. Línumaðurinn sterki snýr alltaf baki í vítaskyttuna og vonar það besta. 5. desember 2011 08:00 HM 2011: Við gerðum ekki það sem lagt var upp með „Það er of erfitt að ráða í þessa leikmenn sem við vorum að mæta. Það er ekki oft sem við spilum gegn liðum sem leika svona handbolta. Við gerðum ekki það lagt var upp með og þær skoruðu nánast að vild,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir eftir 28-24 tapleikinn gegn Angóla. 5. desember 2011 02:28 HM 2011: Myndasyrpa frá tapleiknum gegn Angóla Íslenska kvennalandsliðið tapaði gegn Angóla, 28-24, á heimsmeistaramótinu í handbolta í Brasilíu í gær. Leikmenn Íslands leyndu ekki vonbrigðum sínum með úrslitin. Angóla í betri stöðu en Ísland þegar kemur að sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. 5. desember 2011 02:44 Mest lesið „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Hinn reynslumikli Stafford eftirsóttur Sport Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ Handbolti Bologna kom til baka gegn AC Milan Fótbolti „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Handbolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ „Getum gengið stoltar frá borði“ Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Elliði Snær og Andri Már í sigurliðum Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Fyrrverandi þingmaður tekur við formennsku hjá FH Hetja heimsmeistaranna handleggsbrotnaði „Litla höggið í sjálfstraustið“ Hægt að hlusta frítt á Þóri Hergeirs segja frá leyndarmálunum Lyftu bikarnum fyrir framan þær en hafa síðan ekki unnið Val í þúsund daga Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Sjá meira
Anna Úrsúla: Bara einhver vitlaus hjátrú hjá mér Anna Úrsúla Guðmundsdóttir getur ekki horft á liðsfélagana taka vítaköstin á Heimsmeistaramótinu í handbolta kvenna í Brasilíu. Línumaðurinn sterki snýr alltaf baki í vítaskyttuna og vonar það besta. 5. desember 2011 08:00
HM 2011: Við gerðum ekki það sem lagt var upp með „Það er of erfitt að ráða í þessa leikmenn sem við vorum að mæta. Það er ekki oft sem við spilum gegn liðum sem leika svona handbolta. Við gerðum ekki það lagt var upp með og þær skoruðu nánast að vild,“ sagði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir eftir 28-24 tapleikinn gegn Angóla. 5. desember 2011 02:28
HM 2011: Myndasyrpa frá tapleiknum gegn Angóla Íslenska kvennalandsliðið tapaði gegn Angóla, 28-24, á heimsmeistaramótinu í handbolta í Brasilíu í gær. Leikmenn Íslands leyndu ekki vonbrigðum sínum með úrslitin. Angóla í betri stöðu en Ísland þegar kemur að sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. 5. desember 2011 02:44