Körfubolti

Helena kvaddi árið með flottum leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir lék vel með Good Angels Kosice þegar liðið vann 91-57 sigur á Dannax Sport Kosice í slóvösku deildinni í gær en þetta var síðasti leikur liðsins fyrir jólafrí.

Helena var bæði stigahæst og stoðsendingahæst í liði Englanna en hún var með 21 stig og 7 stoðsendingar í leiknum. Helena hitti úr 9 af 16 skotum sínum þar af 3 af 6 fyrir utan þriggja stiga línuna.

Good Angels Kosice er búið að vinna fyrstu þrettán leiki sína í slóvakísku deildinni og Helena er með 12,5 stig og 3,8 stoðsendingar að meðaltal á 23,4 mínútum í leik.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×