Innlent

Jussanam fær varanlegt dvalarleyfi: "Sigur fyrir konur"

Jussanam er himinlifandi yfir nýfengnu dvalarleyfi.
Jussanam er himinlifandi yfir nýfengnu dvalarleyfi.
„Ég er mjög glöð," segir brasilíska söngkonan Jussanam Da Silva, sem hefur fengið varanlegt dvalarleyfi hér á landi. Innanríkisráðuneytið veitti henni dvalarleyfið í gær og byggði ákvörðun sína á sterkum tengslum hennar við land og þjóð samkvæmt fréttastofu RÚV.

Það var Vísir sem greindi fyrst frá neyð Jussanam. Hún hafði unnið í tvö ár á frístundarheimilinu Hlíðaskjóli og var þegar búin að gera starfssamning um að vinna í ár til viðbótar á heimilinu þegar Vinnumálastofnun hafnaði samningnum. Ástæðan var sú að Jussanam var á þeim tíma nýskilin við eiginmanninn sinn. Fengust þær skýringar í kjölfarið að atvinnuleysið á Íslandi væri það hátt að einstaklingar af EES svæðinu gengu fyrir. Þar af leiðandi fékk hún samninginn ekki samþykktan.

Jussanam hefur getið sér gott orð hér landi meðal annars fyrir sönghæfileika sína. Hún hefur sungið með helstu djasstónlistarmönnum Íslands, meðal annars Tómasi R. Einarssyni og píanóleikaranum Agnari Má Magnússyni. Þá gaf hún út tónlistardiskinn Ela é Carioca hér á landi árið 2009.

„Ég held að þetta hafi verið sigur fólksins sem studdi mig og ekki síður fyrir konur," segir Jussanam sem hefur sótt um ríkisborgararétt hér á landi en afgreiðsla þess máls er á könnu allsherjarnefndar Alþingis.

Jussanam er vongóð um að fá ríkisborgararétt á sömu forsendum og hún fékk dvalarleyfið enda hefur hún afar sterk tengsl við land og þjóð eftir að hafa verið búsett hér á landi í allnokkur ár ásamt dóttur sinni.

Jussanam hefur ekki geta unnið síðan hún var svipt dvalarleyfi hér á landi vegna lögskilnaðarins. Hún segir þó við fréttamann Vísis að hún hafi fengið þau svör að hún geti snúið aftur til starfa á næstunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×