Innlent

Lagði sig í hættu við að stela miklu af klósettpappír

Kona á miðjum aldri virðist hafa lagt sig í nokkra hættu í nánast mannskaðaroki í gærkvöldi, við að stela miklu af klósettpappír úr stórum flutningavagni, sem fauk aftan úr dráttarbíl undir Ingólfsfjalli í gærmorgun.

Rétt áður en lögreglumenn á eftirlitsferð komu að flutningavagninum  í gærkvöldi, mættu þeir konunni á fólksbíl, sem virtist vera troðfullur af einhverjum hvítum varningi, en létu það afskiptalaust. En þegar þeir komu að flutningavagninum sáu þeir að þaðan átti eftir að fjarlægja mikið af klósettpappír, og áttuðu sig þá á því hvers kyns var, en þá var konan sloppin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×