Innlent

Engar bilanir hjá Mílu - viðbúnaður enn á hættustigi

Frá Kirkjubæjarklaustri fyrr í dag
Frá Kirkjubæjarklaustri fyrr í dag Mynd Vilhelm
Engar bilanir eða truflanir hafa orðið í fjarskiptakerfi Mílu á gossvæðinu í Grímsvötnum.  Þetta á einnig við um örbylgjusambönd, en öskufall virðist ekki hafa áhrif á þau.  Áfram verður fylgst með styrk þeirra.

Í tilkynningu frá Mílu segir að lokið hefur verið við að þétta loftinntök og hurðaop í tækjahúsum á svæðinu. Verið er að yfirfara síur í tækjahúsum og verður það gert daglega.

Mat neyðarstjórnar er að viðbúnaður Mílu sé enn á „Hættustigi" miðað við framvindu eldgoss Í Grímsvötnum. Neyðarstjórn fylgist með þróun mála og fundar eins oft þörf krefur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×