Ögmundur nýtur þess að heyra suðið í litlu rellunum 30. mars 2011 19:30
Ögmundur Jónasson, ráðherra flugmála, býður borginni upp á sátt um færanlega flugafgreiðslu á Reykjavíkurflugvelli en segir tómt mál um að tala að flugvöllurinn verði fluttur. Norður-suðurbrautinni verður lokað eftir fimm ár, og vellinum síðan alfarið eftir þrettán ár, samkvæmt stefnu borgarinnar, en fyrr í vetur höfnuðu ráðamenn hennar áformum um samgöngumiðstöð. Fyrrverandi samgönguráðherra, Kristján. L. Möller, sem tók málið upp í þinginu, er ekki sáttur. Hann sagði að með skipulegum hætti, með skipulagsbreytingum og með aðgerðarleysi og doða, hefðu borgaryfirvöld unnið að því leynt og ljóst að gera Reykjavíkurflugvöll óstarfhæfan. Flugið væri í spennitreyju allra flokka í borgarstjórn Reykjavíkur. Eftirmaður hans, Ögmundur Jónasson, ítrekaði þá skoðun sína að flugvöllurinn ætti að vera áfram í Vatnsmýri. Hann hefði í viðræðum við borgina lagt til að nýtt húsnæði yrði byggt við hlið Flugfélagsafgreiðslunnar. Ríkið væri fyrir sitt leyti tilbúið að horfa til óska Reykjavíkurborgar um að slík bygging væri færanleg. Hann sagði borgaryfirvöld standa föst á áformum sínum um að flugvöllurinn fari. "Hins vegar er hitt sannað að við höfum ekki peninga til að flytja flugvöllinn. Þannig að það er tómt mál um það að tala." Sjálfur kvaðst Ögmundur ekki kvarta. Hann byggi í um 500 metra fjarlægð frá flugvellinum og kynni því sambýli ágætlega. Hann beinlínis nyti þess að heyra í litlu rellunum. "Mér finnst þetta alltaf yndislegur vorboði þegar ég heyri suðið í litlu æfingaflugvélunum yfir Reykjavíkurflugvelli," sagði Ögmundur.
Mest lesið Patrik biðst afsökunar Innlent Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Innlent Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Innlent Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Innlent Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Erlent Umferðartafir vegna áreksturs Innlent Veislan tekin af dagskrá FM957 Innlent Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Erlent Fleiri fréttir Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum „Það má alveg stríða pínulítið“ Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu „Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu Ærin verkefni framundan á þingi og voðaverki afstýrt í Vín „Sorglegt og alvarlegt“ hvernig málum er komið í grunnskólum Sjá meira