Innlent

Enn víða ófært á Akureyri

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Veður hefur að mestu leyti gengið niður á Akureyri í kvöld. Lögreglumaður sem Vísir talaði við sagði að það gengi að vísu á með hríð en það væri ekki hvassviðri nú í kvöld eins og hefði verið í dag. Það var nánast alveg ófært innanbæjar á Akureyri í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er núna búið að ryðja allar helstu umferðargöturnar en ekki hefur enn verið rutt í íbúðagötum. Það sitja því væntanlega flestir með bílana sína fasta heima hjá sér ennþá.

Lögreglan hefur ásamt björgunarsveitamönnum staðið í ströngu við að hjálpa fólki að komast á milli staða í allan dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×