Innlent

Hörður nýr ritstjóri Bændablaðsins

Hörður Kristjánsson hefur verið ráðinn ritstjóri Bændablaðsins og kemur til starfa á næstu vikum. Hörður hefur síðustu ár starfað á Viðskiptablaðinu.

Hann hefur margháttaða reynslu af blaðamennsku og meðal annars starfað sem fréttaritari og kvikmyndatökumaður fyrir Ríkisútvarpið með aðsetur á Ísafirði, ljósmyndari, hönnuður og umbrotsmaður í prentsmiðju ásamt því að hafa starfað sem blaðamaður hjá Vestfirska fréttablaðinu,Vestra, DV og Fiskifréttum.

Hörður var í Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árum áður ásamt því að vera með meistararéttindi í ljósmyndun.

Þetta kemur fram á vef Bændablaðsins.

Hörður tekur við starfi ritstjóra af Þresti Haraldssyni sem hefur ritstýrt Bændablaðinu frá árinu 2006. Alls sóttu 27 manns um starfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×