Innlent

Sveppamaður lá nakinn uppi í rúmi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Atvikið gerðist á Selfossi.
Atvikið gerðist á Selfossi. mynd/ rósa.
Lögregla var kölluð að íbúðarhúsi á Selfossi aðfaranótt sunnudags vegna gruns um að þar væri maður sem ekki ætti þar að vera. Þegar lögreglumenn komu inn í íbúðina sáu þeir allsnakinn karlmann sem lá sofandi í sófa inni í stofu.

Af ummerkjum að dæma hafði maðurinn dvalið um tíma í íbúðinni allt að hálfan sólarhring. Hann reyndist undir áhrifum fíkniefna og gat ekki gert grein fyrir veru sinni og bar við minnisleysi af völdum sveppaneyslu. Eigendur íbúðarinnar eru á ferðalagi erlendis.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni verður maðurinn kærður fyrir húsbrot og fyrir brot á lögum um meðferð fíkniefna en hjá honum fundust sveppir sem sendir verða til efnagreiningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×