Sýknaður af kynferðisbroti gegn fimm ára stelpu Jón Hákon Halldórsson skrifar 31. mars 2011 17:02 Hæstiréttur Íslands staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands. Mynd/ Stefán.
Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann af ákæru um kynferðisbrot. Hann var sakaður um að hafa berað á sér kynfærin fyrir framan fimm ára stúlku og látið hana afklæðast að hluta og káfað á líkama hennar, þar með talið á kynfærum hennar og rassi utan klæða. Í Héraðsdómi Suðurlands var talið að meðferð málsins fram að skýrslugjöf meints brotaþola fyrir dómi hefði verið til þess fallin að rýra sönnunargildi þess vitnisburðar og varð því ekki byggt á honum við sönnunarmat í málinu. Vísað var til þess að þrátt fyrir aldur meints brotaþola hefði ekki verið hlutast til um að hún gæfi skýrslu fyrir dómi fyrr en rúmum mánuði eftir samskipti barnsins við manninn. Segir Hæstiréttur að þá hafi stelpan ítrekað verið yfirheyrð um atvik málsins hjá sálfræðingi og hafði móðir hennar látið hana taka þátt í sérstökum leik í þeim tilgangi að fá fram frásögn um það sem gerst hafði. Dómskýrsla stelpunnar hafi borið þess merki að í einhverjum tilvikum hefði framburður hennar litast af því sem móðir hennar hafði tjáð henni. Þar sem engum öðrum sönnunargögnum var til að dreifa sem sýndu fram á sekt mannsins var hann sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands og var sú niðurstaða staðfest í Hæstarétti í dag með vísan til forsendna héraðsdóms.
Mest lesið Patrik biðst afsökunar Innlent Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Innlent Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Innlent Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Erlent Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Innlent Umferðartafir vegna áreksturs Innlent Veislan tekin af dagskrá FM957 Innlent Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Erlent Fleiri fréttir Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum „Það má alveg stríða pínulítið“ Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu „Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu Ærin verkefni framundan á þingi og voðaverki afstýrt í Vín „Sorglegt og alvarlegt“ hvernig málum er komið í grunnskólum Sjá meira