Viðræður um kísilver á Bakka 31. mars 2011 18:45
Þýskt fyrirtæki er í viðræðum við Landsvirkjun um að reisa kísilverksmiðju við Húsavík, sem myndi skapa um eitthundrað störf. Þjóðverjarnir voru fyrir norðan í gær að kynna sér aðstæður. Þetta er fyrirtækið PCC. Það er með höfuðstöðvar í Duisburg í Þýskalandi og veltir um eitthundrað milljörðum króna. Starfsmenn eru alls um tvöþúsund talsins í tólf löndum, einkum í Austur-Evrópu. Þrír fulltrúar félagsins voru á Húsavík í gær í fylgd fulltrúa Landsvirkjunar til að skoða aðstæður og ræða við heimamenn. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2 eru viðræðurnar á frumstigi og Þjóðverjarnir með fleiri en eina tegund kísilframleiðslu í huga, en þeir eru jafnframt með tvo aðra staði til skoðunar í Austur-Evrópu. Líklegt er að verksmiðjan yrði á stærð við kísiljárnverksmiðjuna á Grundartanga, hugsanlega byggð í tveimur áföngum og með um eitthundrað starfsmenn. Orkuþörfin yrði 30 til 50 megavött en til samanburðar þarf 250 þúsund tonna álver 400 megavött. Þjóðverjarnir vilja helst hefja framkvæmdir á næsta ári. Þetta verkefni á hins vegar eftir að fara í umhverfismat, sem talið er taka tólf til átján mánuði, og hugsanlega enn lengri tíma ef fylgt verður fordæmi um svokallað sameiginlegt mat, eins og álver Alcoa var sett undir, en það mat tók tvö og hálft ár.
Mest lesið Patrik biðst afsökunar Innlent Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Innlent Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Innlent Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Innlent Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Erlent Umferðartafir vegna áreksturs Innlent Veislan tekin af dagskrá FM957 Innlent Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Erlent Fleiri fréttir Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum „Það má alveg stríða pínulítið“ Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu „Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu Ærin verkefni framundan á þingi og voðaverki afstýrt í Vín „Sorglegt og alvarlegt“ hvernig málum er komið í grunnskólum Sjá meira