Barðstrendingar orðnir reiðir vegna vegamála 31. mars 2011 11:52 Ólína Þorvarðardóttir er þingmaður Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi. Mynd/ Vilhelm.
Ólga er meðal Samfylkingarmanna á sunnanverðum Vestfjörðum í garð þriggja þingmanna flokksins, sem þeir segja vinna gegn óskum íbúa fjórðungsins um vegarbætur. Barðstrendingar berjast nú fyrir því að losna við veginn um Ódrjúgsháls og Hjallaháls og telja að eina raunhæfa leiðin sé að fá nýjan veg í gegnum Teigsskóg. Stjórnarmaður í Samfylkingarfélaginu í Vesturbyggð, Haukur Már Sigurðarson á Patreksfirði, segir að flokksmenn þar séu ósáttir við að Ólína Þorvarðardóttir skyldi leggjast gegn málinu og segir að hún skuldi íbúum skýringu. "Það getur vel verið að afstaða hennar sé fullkomlega eðlileg en okkur finnst hún ekki hafa skýrt mál sitt nægilega til þess að við getum verið sátt við hana, - að sinni," segir Haukur. Óánægjan beinist einnig að þingmönnunum Merði Árnasyni og Róberti Marshall fyrir að leggja til á Alþingi að svæðið umdeilda verði gert að þjóðgarði. "Við erum mjög stolt af okkar náttúru og erum fullfær um að verja hana fyrir ágangi annarra, ef því er að skipta," segir Haukur. Hann segir að það að koma með tillögu núna á þessum tímapunkti um að friða þetta svæði sé eingöngu gert til að trufla umræðuna, þegar kannski hylli undir samgöngubætur. Barðstrendingar séu um árabil búnir að berjast fyrir þjóðgarði við Látrabjarg og nær hefði verið fyrir þingmennina að leggja þeim lið í þeirri baráttu. Haukur Már segir að reiði sé farið að gæta meðal íbúanna vegna ástands vegamála. "Stundum hafa menn verið óánægðir og óþreyjufullir en núna finnst mér vera kominn vendipunktur í þetta og menn séu orðnir reiðir," segir vestfirski Samfylkingarmaðurinn.
Mest lesið Patrik biðst afsökunar Innlent Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Innlent Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Innlent Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Innlent Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Erlent Umferðartafir vegna áreksturs Innlent Veislan tekin af dagskrá FM957 Innlent Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Erlent Fleiri fréttir Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum „Það má alveg stríða pínulítið“ Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu „Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu Ærin verkefni framundan á þingi og voðaverki afstýrt í Vín „Sorglegt og alvarlegt“ hvernig málum er komið í grunnskólum Sjá meira