Erlent

Handtekinn fyrir að áreita eldri borgara í umferðinni

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Dani á fimmtugsaldri var handtekinn í fyrrakvöld eftir að hafa áreitt konu á sjötugsaldri í umferðinni.

Maðurinn hafði verið að aka í Kolding þegar hann ók á eftir konunni. Eitthvað virðist hann hafa verið að flýta sér því hann ók laust aftan á konunnar nokkrum sinnum.

Að lokum vildi ekki betur til en að hann festi stuðarann í bíl konunnar þannig þau staðnæmdust.

Maðurinn fór þá út úr bílnum og lét öllum illum látum. Meðal annars reif hann rúðuþurrkurnar af bíl konunnar og lamdi í vélarhlíf bílsins. Stuttu síðar var hann handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×