Erlent

Hryðjuverk reyndist rafmagnsbilun

Frá Moskvu. Myndin er úr safni.
Frá Moskvu. Myndin er úr safni.
Sprenging varð á strætisvagnastöð í Moskvu í gær. Óttast var í fyrstu að um hryðjuverkaárás hefði verið að ræða, en tólf létust í hryðjuverkaárás í Minsk í Hvíta Rússlandi á mánudaginn.

Í ljós kom þó að alvarleg rafmagnsbilun hafði orðið nærri skýlinu sem olli sprengingunni. Bilunin var rakin til gatnaframkvæmda á svæðinu.

Enginn slasaðist í sprengunni sem var talsverð, samkvæmt rússneskum fjölmiðlum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×