Innlent

Aðeins 17% flugferða Iceland Express á réttum tíma

Mynd úr safni
Flugferðum Iceland Express, til og frá Keflavíkurflugvelli, seinkaði að meðaltali um klukkutíma á síðasta þriðjungi júnímánaðar. Aðeins 17 prósent af vélum félagsins héldu áætlun. Þetta er niðurstaða útreikninga á ferðavefnum Túristi.

Á sama tímabili fóru tvær af hverjum þremur vélum Icelandair í loftið á réttum tíma og seinkaði flugtaki að jafnaði um tæpar tíu mínútur. Komutímar Icelandair í Keflavík stóðust í sextíu prósent tilvika.

Útreikningar Túrista byggja á upplýsingum um komur og brottfarir á heimasíðu Leifsstöðvar.

Sjá nánar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×