Innlent

Fíkniefnamál í Grafarvogi

Mynd úr safni
Mynd úr safni Mynd/GVA
Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í gær eftir að talsvert magn af ætluðu amfetamíni fannst á heimili hans í Grafarvogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan telur að fíkniefnin sem voru um hálft kíló hafi átt að fara í sölu. Maðurinn sem áður hefur komið við sögu hjá lögreglu hefur verið yfirheyrður og viðurkennt brot sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×