Körfubolti

Bjarni Magnússon tekur við kvennaliði Hauka

Bjarni Magnússon hefur verið ráðinn sem þjálfari meistraflokks liðs Hauka í kvennakörfuboltanum en hann tekur við af Henning Henningssyni sem sagði starfi sínu lausu.
Bjarni Magnússon hefur verið ráðinn sem þjálfari meistraflokks liðs Hauka í kvennakörfuboltanum en hann tekur við af Henning Henningssyni sem sagði starfi sínu lausu.
Bjarni Magnússon hefur verið ráðinn sem þjálfari meistraflokks liðs Hauka í kvennakörfuboltanum en hann tekur við af Henning Henningssyni sem sagði starfi sínu lausu. Bjarni var aðstoðarþjálfari Fjölnis í úrvalsdeild karla á síðustu leiktíð en hann lék með ÍA, Haukum og Grindavík í úrvalsdeildinni.

Henning mun halda áfram störfum fyrir Hauka en hann mun þjálfa yngri leikmenn deildarinnar. Haukar enduðu í fjórða sæti úrvalsdeildar kvenna á síðustu leiktíð.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×