Innlent

Iceland Express biðst afsökunar á töfum

Iceland Express biðst afsökunar á töfum í flugi félagsins að undanförnu, í heilsíðuauglýsingum í dagblöðum í dag.

Tafirnar eru raktar til þess að breytingar á þjónustu við vélarnar á Keflavíkurflugvelli tóku mun lengri tíma en áætlað var.

Félagið hefur sett sér það markmið að vera með vélar sínar á réttum tíma, eða innan 15 mínútna skekkjumarka, í 75 prósentum tilvika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×