Leit lokið í flaki Air France þotunnar 9. júní 2011 07:49
Búið er að ljúka leit að líkunum í flaki Air France þotunnar sem fórst í flugi milli Rio de Janeiro og Parísar fyrir tveimur árum síðan. Alls tókst að ná líkum 104 farþega af hafbotninum undan vesturströnd Brasilíu þar sem flak þotunnar fannst á nær 4.000 metra dýpi. Samkvæmt frétt um málið á BBC voru fyrstu líkin sem komu upp á yfirborðið enn föst í sætisólum sínum. Það reyndist hinsvegar ómögulegt að ná 70 af líkunum upp af hafsbotninum. Alls voru 228 farþegar um borð þegar þotan hrapaði og fórust þeir allir. Fyrstu dagana eftir slysið fundust lík um 50 þeirra á floti á slysstað. Líkin sem fundust voru flutt til Toulouse í Frakklandi þar sem verið er að vinna við að bera kennsl á þau. Auk þess að bjarga líkunum fundust svörtu kassarnir í þotunni. Samkvæmt þeim voru það vandamál með hraðamæla þotunnar sem ollu því að hún missti hraða og hæð og flugmönnum tókst ekki að koma í veg fyrir hrapið vegna þessara vandamála. Reiknað er með að frönsk flugmálayfirvöld gefi út skýrslu um þetta flugslys í næsta mánuði.
Mest lesið Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Kajakræðarar í hættu hífðir upp Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Önnur djúp lægð á leiðinni Veður Bíll alelda á Hellisheiði Innlent Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Erlent Fleiri fréttir Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Hætt við samkomulag við höfuðpaur hryðjuverkanna 11. september „Skrýtinn“ höggstaður á Trump sem snýr sér að kynþætti Harris Enn einar óeirðirnar í Bretlandi í kjölfar hnífaárásarinnar Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Gangast loksins við leyniþjónustufólki eftir fangaskiptin Segir Kim telja að hægt sé að semja við Trump Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu 550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Segir setningarathöfnina traðka á mannlegri reisn Keppendur Ísrael fengu hótanir um endurtekningu á 1972 Umfangsmikil fangaskipti gætu verið á næsta leiti Nafngreina árásarmanninn til að stemma stigu við upplýsingafalsi Kom að hylla forsetann en endaði í kistu við fætur hans Segja hægt að koma í veg fyrir eða seinka um helmingi Alzheimers tilvika Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum „Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð Sjá meira