Erlent

Ætlar að skrifa áfram í blaðið

Bill Keller
Bill Keller
Bill Keller, aðalritstjóri bandaríska stórblaðsins The New York Times, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu nú í september. Keller, sem verður 62 ára í ár, mun áfram skrifa í blaðið.

Netmiðillinn Columbia Journalism Review segir í umfjöllun sinni um feril Kellers uppsögnina í takt við stríð Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum og aftökuna á hryðjuverkaleiðtoganum Osama bin Laden fyrir mánuði. Hann var einn fréttastjóra blaðsins 11. september 2001 þegar farþegaflugvélum var flogið á Tvíburaturnana í New York og stýrði umfjöllun blaðsins um hryðjuverkasamtökin. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×