Innlent

Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins

Gunnar Rúnar vék úr dómsal áður en geðlæknar báru vitni
Gunnar Rúnar vék úr dómsal áður en geðlæknar báru vitni Mynd: GVA

Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu.

Eftir áfallið virðist hafa þroskast með honum dúpstæðar breytingar á sálarlífi hans. Með honum þróaðist sjúkleg þráhyggja gagnvart Hildi, unnurstu Hannesar heitins, sem hann nær ekki að hafa stjórn á. Þetta eru djústæðir eiginleikar í sálarlífinu og krefjast mikils inngrips, bæði sálfræðimeðferðar og lyfjameðferðar.

Helgi Garðar segir að vegna áfallsins vegna fráfalls föður hans hafi þróast með Gunnari Rúnari tveir persónuleikar, hinn eðlilegi, heilbrigði og dagfarspruði Gunnar Rúnar. Síðan er annar persónuleiki á djúpu geðrofsplani og sá persónuleiki skýst upp á yfirborðið án þess að Gunnar Rúnar ráði við það. Gunnar Rúnar hafi þannig ekki verið með sjálfum sér þegar að hann framdi verknaðinn né heldur strax eftir hann.

Helgi Garðar segir að í samtölum við sig hafi komið fram djúpstæð sektarkennd vegna morðsins og hann hafi verð harmi sleginn yfir atburðunum og áfellst sjálfan sig. Hann var í hálfgerðri örvæntingu yfir því sem hann hafði gert.

Geðlæknirinn vill að Gunnar Rúnar sé í öryggisgæslu. Hann sé haldinn svo djúpstæðum sjúkleika að hann læknast ekki á dögum eða vikum.

Hann sagði líka að draga mætti þann lærdóm af þessu málið að samfélagið þarf að heyra þau skilaboð að það þarf að taka áföllum hjá börnum alvarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×