

Burt af hvaða svæði?
Fasteignaskuldir meirihluta landsmanna eru allt of háar og hækka umfram alla sanngirni. Íslensk heimili eru þau skuldsettustu í Evrópu. Afleiðingin er minni neysla og versnandi lífskjör þrátt fyrir ýmis góð merki um raunverulegan viðsnúning sem ráðherrar nefna „hægan efnahagsbata“. En svona er staðan samhliða geigvænlegu verðlagi á helstu nauðsynjum. Hilluverðið hefur hækkað umfram alla sanngirni. Tannkremið hans Jóns hefur hækkað um 100%, úr 400 í 800 krónur. Húsnæðislán skilvísu Gunnu hækkaði úr 13 milljónum króna í 18 á tveimur árum og afborgunin úr 70.000 í 100.000 á meðan hún nú geymir aflafé til næstu afborgunar á sparireikningi með neikvæðum vöxtum. Þegar yfir lýkur hefur hún greitt bankanum 60-70 milljónir króna, segja sérfræðingar, með sínar 4-6 milljón króna árstekjur fyrir skatta. Þeir segja líka að bankinn hafi eignast lánið á útsölu, fyrir 35% af nafnvirði.
Mitt í þessum veruleika ritar Árni Páll efnahags- og viðskiptaráðherra grein í blaðið (3.ág. Burt af hættusvæðinu). Hann minnir á að evruríkin leiti nú leiða til að þurfa ekki að leggja óbærilegar byrðar á þegnana og hve mikilvægt sé að ríki geti ekki skuldsett sig úr hófi fram og grafið undan efnahagsstöðugleika. Hann minnir á hve útflutningsvörur okkar eru viðkvæmar fyrir kaupmáttarþróun fólksins í þessum löndum. Hann skrifar um samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs sem þurfi að tryggja. Skyldi vera unnt að heimfæra þessi orð yfir á skilvísu heimili landsins?
Miðað við kaupmátt launa eru byrðar meirihluta skuldandi þegna að verða óbærilegar. Skuldaþróunin hefur fyrir löngu stefnt úr hófi fram og grafið undan stöðugleika heimila umfram sanngjarnar byrðar. Kaupmáttur hins stóra hóps meðaltekjufólks rýrnar hratt og það grefur undan tekjum ríkis og fyrirtækja. Samkeppnishæfni alþýðu manna er of lítil.
Árni Páll notar orðin heilbrigðar framtíðarhorfur í grein sinni. Þegar tannkremstúpa Jóns kostar 1.000 krónur eftir önnur tvö ár og 5% launahækkun, og lán Gunnu hefur náð yfir 50% af eignarvirðinu (það var 35% í upphafi), hverjar eru þá heilbrigðar framtíðarhorfur þessa óheppna, vinnusama og skilvísa pars? Norskur veruleiki?
Spurt er um lausnir á ástandinu. Þær eru til en væru líklega nokkuð harðar, bæði bönkum og ríkisfjármálum. Árni Páll bendir á að lausn evruríkja í þeirra vanda feli m.a. í sér endurfjármögnun og endurmat á skuldum (án óbærilegra byrða á þjóðirnar).
Þetta skyldi þó ekki geta átt við um samskipti skuldsetts almennings, stóru bankanna, Íbúðalánasjóðs, lífeyrissjóðanna og ríkisins?
Skoðun

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar